Skip to main content

Aðalból

Á Aðalbóli var búið samfellt frá 1851 til 1863, eftir það með hléum til 1878. Landnemi mun hafa verið Páll Guðmundsson frá Hnefilsdal á Jökuldal og er býlis á Aðalbóli fyrst getið í sóknarmannatali Hofs í árslok 1851.

Árið 1852 er Páll sagður þar bóndi og einsetumaður. Samkvæmt þeirri heimild býr Páll þar seinna ásamt konu sinni, Ingibjörgu Indriðadóttur, til 1863. Þar kemur einnig fram að Grímur Grímsson er skráður bóndi þar 1859 en Páll húsmaður. Eftir 1863 er lítið vitað um búsetu á Aðalbóli nema sóknarmannatal 1877 segir búa þar fjölskyldu sem var í tvíbýli á Selsárvöllum. Ekki er kunnugt um mörk á landi Aðalbóls sem stóð í Búastaðatungum en greiddir voru þrír sauðir í afgjald árlega "fyrir Mikaelsmessu" og landeigendum ætluð afnota að auki. Páll Guðmundsson lést á Vakurstöðum 1873 en Ingibjörg kona hans varð úti 1. janúar við seltættur á hálsinum milli Lýtingsstaða og Vakurstaða og eru tætturnar við hana kenndar síðan.

  • Last updated on .
  • Hits: 1412